Starfsfólk

Lesa upp texta

Bryndís Kristín Þráinsdóttir

Bryndís hóf störf hjá Farskólanum - miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra 1. ágúst 2001. Bryndís er fædd og uppalin í Reykjavík og síðar í Ólafsvík. Bryndís er grunnskólakennari að mennt. Hún kenndi við Grunnskólann í Ólafsvík og síðar við Háskólann á Bifröst. Frá 1993 kenndi Bryndís við Árskóla á Sauðárkróki þar sem hún kenndi aðallega stærðfræði og myndmennt ásamt því að starfa á bókasafni skólans.

Bryndís kom til starfa hjá Farskólanum haustið 2001 og hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra Farskólans síðan 2003.

Bryndís lauk meistaranámi í menntunarfræðum frá Háskóla Íslands, með áherslu á fræðslustarf með fullorðnum og mannauðsþróun, haustið 2009. Lokaritgerð Bryndísar fjallaði um námskeiðsmat. Síminn hjá Bryndísi er:  455-6010 og 894-6012. Netfangið hjá Bryndísi er: bryndis(hjá)farskolinn.is

Jóhann Ingólfsson

Jóhann hóf störf hjá Farskólanum - miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra haustið 2003. Jóhann er fæddur og uppalinn í Reykjavík. Jóhann er meistari í rafvélavirkjun og er með kennsluréttindi frá Háskólanum á Akureyri. Jóhann hefur kennt við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.

Jóhann hefur umsjón með Námsveri háskólanema á Sauðárkróki, hefur yfirumsjón með prófum háskólanema og fjarfundabúnaði. Hann sér einnig um að skipuleggja og halda utan um námskeið og kenna á þeim. Síminn hjá Jóhanni er: 455-6011 og 893-6011. Netfangið hjá Jóhanni er: johann(hjá)farskolinn.is.

Helga Hinriksdóttir

Helga hóf störf hjá Farskólanum - miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra í janúar 2011. Helga er einnig starfsmaður Virkis Þekkingarseturs á Hvammstanga þar sem hún er búsett enda vestur Húnvetningur í húð og hár. Helga útskrifaðist af Tungumála- og hugvísindasviði í Grunnskólakennaradeild HÍ árið 2005. Ári síðar flutti hún ásamt fjölskyldu sinni til Danmerkur, þar sem hún lagði stund á kerfisfræði og útskrifaðist þaðan haustið 2008.

Helga hefur umsjón með fræðsluverkefninu Eflum Byggð í Húnaþingi vestra ásamt því að sinna öðrum verkefnum fyrir Farskólann. Síminn hjá Helgu er: 455 - 2525 og 864 - 6014.  Netfangið hjá Helgu er: helgahi(hjá)farskolinn.is.

Rannveig Aðalbjörg Hjartardóttir

Rannveig hóf störf hjá Farskólanum - miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra 1. nóvember 2009. Rannveig sér um skráningar á námskeið, símsvörun og fleira auk þess sem hún hefur umsjón með námskeiðum. Starfsstöð Rannveigar er í Vestur - Húnavatnssýslu; að Stóru - Ásgeirsá og að Höfðabraut 6 á Hvammstanga.

Síminn hjá Rannveigu er: 455 - 6010. Netfang Rannveigar er: rannveig(hjá)farskolinn.is

Halldór Brynjar Gunnlaugsson

Halldór hóf störf hjá Farskólanum - miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra vorið 2011. Halldór er fæddur og uppalinn í Skagafirði. Halldór útskrifaðist sem kennari frá Háskólanum á Akureyri auk þess sem hann lauk viðskiptafræði frá sama skóla. Halldór bjó nokkur ár í Danmörku og lauk þaðan meistaraprófi í markaðsfræði frá Árósarháskóla.

Halldór skipuleggur og hefur umsjón með námskeiðum og markaðsstarfi hjá Farskólanum ásamt fleiri verkefnum eins og kennslu og aðstoð við háskólanema. Síminn hjá Halldóri er: 455 - 6013. Netfang Halldórs er: halldorb(hjá)farskolinn.is

Aðalheiður Reynisdóttir

Aðalheiður tekur að sér verkefni fyrir Farskólann - miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra sem tengjast náms- og starfsráðgjöf og kennslu. Aðalheiður er stúdent og sjúkraliði frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Hún lauk námi í iðjuþjálfun, B.Sc frá HA árið 2001 og náms- og starfsráðgjöf frá HÍ árið 2008 auk þess að vera með kennsluréttindi. Aðalheiður er í meistaranámi í Náms- og starfsráðgjöf við HÍ. Aðalheiður hefur lokið námskeiði og hefur réttindi til að nota Baujuna til sjálfsstyrkingar, slökunar og dáleiðslu í meðferð við kvíða og streitu.

Aðalheiður sinnir náms- og starfsráðgjöf hjá Farskólanum ásamt því að kenna á námskeiðum. Aðalheiður heldur líka námskeið fyrir háskólanema; námskeið í skipulagningu náms og hvernig best sé að takast á við prófkvíða, svo dæmi séu tekin. Námskeiðin eru í boði um allt Norðurland vestra.