Jólavín og matur og skrautskrift - spennandi námskeið framundan

Helgina 19. og 20. nóvember verða haldið tvö námskeið hjá Farskólanum; á Blönduósi og á Sauðárkróki

Tvö námskeið verða í Farskólanum helgina 12. - 13. nóvember.

Á Blönduósi verður haldið námskeið í skrautskrift. Leiðbeinandi er: Rúna Kristín Sigurðardóttir. Námskeiðið hefst klukkan 10:00 og stendur yfir í tvo daga. Námskeiðið verður haldið í sal Samstöðu að Þverbraut 1.

Á Sauðárkróki verður haldið námskeið í vínsmökkun; jólavín og matur. Dominique Plédel Jónsson kynnir vín sem passa vel með jólamatnum og Jón Daníel Jónsson, matreiðslumeistari eldar mat og býður þátttakendum að smakka. Námskeiðið verður haldið í Farskólanum við Faxatorg.

Enn er hægt að skrá sig á námskeiðin í síma 455 - 6010 og á heimasíðu Farskólans.

Jón Daníel matreiðslumeistari. Myndin er tekin á námskeiðinu: Chile, vín og matur.

Lesa upp texta