Námskeið vorannar eru hafin hjá Farskólanum.
Námsleiðin Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum er kennt tvisvar í viku. Kennt er til Blönduóss í gegnum fjarfundabúnað.
Landnemaskólinn er á Blönduósi en það er 120 stunda nám fyrir fólk af erlendu bergi brotið.
Ljósmyndanámskeið, framhald, er í gangi á Hvammstanga. Leiðbeinandi þar er Pétur Ingi Björnsson, ljósmyndari og kerfisfræðingur.
Saumanámskeið var haldið á Blönduósi í upphafi janúarmánaðar. Námskeiðið þótti takast frábærlega og verður annað námskeið haldið um næstu helgi, 28. - 29. janúar. Fullbókað er á þetta námskeið en áhugasamir eru hvattir til að láta Farskólann vita hafi þeir áhuga á þessu námskeiði. Leiðbeinandi er Kristín Þöll Þórsdóttir, kjólameistari. Kristín Þöll á einmitt rætur sínar að rekja til Blönduóss en amma hennar var Ragnheiður Brynjólfsdóttir, sem kenndi við Kvennaskólann um árabil.
