Eftirtalin námskeið eru að fara af stað hjá Farskólanum - miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra.
Sauðárkrókur:
Þriðjudaginn 14. febrúar hefst ljósmyndanámskeið fyrir byrjendur. Leiðbeinandi er Pétur Ingi Björnsson, ljósmyndari og kerfisfræðingur. Kennt verður á Faxatorgi. Námskeiðið stendur yfir í þrjú kvöld og kostar 12.300 kr.
Miðvikudagskvöldið 15. febrúar kl. 20:00. Myndlistarnámskeið. Námskeiðið verður haldið á vinnustofu Guðbrands Ægis Guðbrandssonar, kennara og listamanns á Sauðárkróki. Námskeiði er 20 kennslustundir og kostar 21.500 kr.
Blönduós og Skagaströnd:
Tapas námskeið verður haldið á Blönduósi 28. febrúar. Námskeiðið verður haldið í gamla Kvennaskólanum. Kennari er Þórhildur Jónsdóttir, matreiðslumeistari.
Hvammstangi:
Námskeið í brauðgerð er í undirbúningi. Leiðbeinandi verður Ásta Búadóttir.
Fleiri námskeið eru á döfinni um allt svæðið. Minnum á fræðslustyrki stéttarfélaganna. Upplýsingar og skráning hjá Farskólanum í síma: 455-6010. Einnig er hægt að skrá sig á heimasíðunni Farskólans.
