Námskeið framundan í Farskólanum. Vikan 13. - 19. nóvember.

Skvísugreiðslur á Hvammstanga, heimasíðugerð - WordPress á Sauðárkróki, Jólavín og matur, skrautskrift og fleira

Vikuna 13. - 19. nóvember verða eftirtalin námskeið á dagskrá hjá Farskólanum.

Mánudagur 14. nóvember, Skvísugreiðslur á Hvammstanga. Námskeiðið er haldið í grunnskólanum.

Þriðjudagur 15. nóvember. Námskeið í heimasíðugerð - WordPress á Sauðárkróki. Kennari er Kristján Halldórsson, framhaldsskólakennari.

Þriðjudagur 15. nóvember á Hvammstanga. Þæfing, framhald.

Laugardagur 19. nóvember. Blönduós og nágrenni. Skrautskrift. Leiðbeinandi Rúna Kristín Sigurðardóttir.

Laugardagur 19. nóvember. Sauðárkrókur. Jólavín og matur. Leiðbeinendur verða Jón Daníel Jónsson, matreiðslumeistari og Dominique Plédel Jónsson. Námskeiðið hefst klukkan 19:00. Ekki er komin full skráning á þetta námskeið.

Enn er hægt að skrá sig á námskeiðið Jólavín og matur og Skrautskrift á Blönduósi í síma 455 - 6010 eða á heimasíðu Farskólans.

 

Frá námskeiði í sápugerð á Hvammstanga

Sápugerð á Hvammstanga

Lesa upp texta