Nú eru í gangi tvö tölvunámskeið hjá Farskólanum; annað er fyrir skjólstæðinga Fjölmenntar og hitt er námskeið í heimasíðugerð.
Námsvísir vorannar er í vinnslu hjá Farskólanum og hefur Halldór Gunnlaugsson yfirumsjón með honum. Tekið er við ábendingum og tillögum í nýjan námsvísi á netfangið halldor@farskolinn.is. Námsvísirinn kemur út í byrjun janúar 2012.

