Námskeiðum hjá Farskólanum - miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra er lokið á haustönn 2011. Námskeið hafa aldrei verið fleiri en á þessari önn sem nú er að líða eða samtals 38 námskeið.
Flest námskeið voru haldin á Sauðárkróki eða 19. Á Hvammstanga voru haldin 14 námskeið, á Blönduósi 4 og eitt í Varmahlíð.
Á þessu ári voru haldin 64 námskeið á vegum Farskólans. Nánar verður greint frá starfsemi ársins 2011 síðar.
Meðfylgjandi eru myndir af námsmönnum sem stunda nám á námskeiðinu Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum en það er 300 kennslustunda nám. Námshóparnir eru tveir; á Sauðárkróki og á Blönduósi en kennt er til Blönduóss í gegnum fjarfundabúnað. Leiðbeinendur á haustönn hafa verið Birgir Rafnsson, sem hefur kennt stærðfræði 102 og 202 og Þorsteinn Hjaltason, sem kennt hefur ensku 102 og 202.



