Lýsing: Um er að ræða einstaklings- eða hópviðtöl fyrir þá sem vilja kanna hvar áhugasviðin liggja og af hvaða störfum, námi og viðfangsefnum þeir hafa mesta ánægju af að fást við.
Áhugasviðsgreiningar veita mikilvægar upplýsingar með tilliti til ánægju í lífi og starfi. Þær stuðla að bættri sjálfsþekkingu og auka skilning á þeim möguleikum sem eru fyrir hendi hvað varðar náms- og starfsval.
Hægt er að velja úr þremur áhugasviðsgreiningum allt eftir áherslum; Bendill, Strong og Í leit að starfi. Kostnaður er misjafn eftir eðli og umfangi áhugakönnunarinnar.
Náms- og starfsráðgjafi veitir aðstoð við valið.
Fyrir hverja: Ætlað þeim sem hafa áhuga á að kanna áhugasvið sitt.
Hvar: Í Námsverunum á Norðurlandi vestra.
Hvenær: Allt árið
3 kest.