Lýsing: Tilgangur ráðgjafar á vinnustöðum er að hvetja starfsmenn til virkrar símenntunar og starfsþróunar. Ráðgjöfin felst m.a. í því að hvetja starfsmenn til að bæta við sig þekkingu og færni, veita upplýsingar um möguleika í umhverfinu og aðstoða við greiningu á áhugasviði og hæfni. Með því að fá náms- og starfsráðgjafa í heimsókn á vinnustað geta fyrirtæki stuðlað að frekari símenntun starfsmanna, aukinni starfsánægju og árangursríkri starfsþróun. Góð hvatning getur haft úrslitaáhrif þegar tekist er á við ný verkefni.
Framkvæmd: Viðtölin eru framkvæmd af náms- og starfsráðgjafa sem veitir ráðgjöfina bæði á vinnustöðum í samstarfi við stjórnendur og í Farskólanum. Ráðgjöfin á vinnustöðum fer þannig fram að náms- og starfsráðgjafinn kemur og heldur sameiginlegan fund með starfsmönnum þar sem hann kynnir hvaða þjónustu hann býður upp á. Í kjölfarið getur hver og einn starfsmaður fengið viðtal við ráðgjafann um sín mál ef hann hefur áhuga á því.
Fyrir hverja: Viðtöl við náms-og starfsráðgjafa eru fyrir alla sem vilja auka þekkingu sína og möguleika til frekara náms eða þróa frekari færni í starfi.
Hvar: Um allt Norðurland vestra.
Hvenær: Allt árið. Tímar eftir samkomulagi.
Til athugunar: Skráningar fara fram í Farskólanum í síma: 455-6010 eða á netfanginu rannveig@farskolinn.is.
Farskólinn hvetur vinnuveitendur til að hafa samband og fá náms- og starfsráðgjafann í heimsókn sér að kostnaðarlausu.
Náms- og starfsráðgjöf á vinnustað er samstarfsverkefni Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, Samtaka atvinnulífsins, ASÍ og fræðslu- og símenntunarmiðstöðva.
Ekkert gjald