Lýsing: Viðtal við náms- og starfsráðgjafa sem veitir einstaklingum ráðgjöf og upplýsingar til að auðvelda ákvarðanatöku vegna náms- og starfsvals. Leiðsögn og aðstoð til einstaklinga til að takast á við ýmis verkefni sem tengjast námi og starfsþróun.
Framkvæmd: Viðtölin fara fram í Námsverunum á Norðurlandi vestra.
Fyrir hverja: Viðtöl við náms-og starfsráðgjafa eru fyrir alla sem vilja auka þekkingu sína og möguleika til frekara náms eða þróa frekari færni í starfi.
Hvar: Um allt Norðurland vestra.
Hvenær: Allt árið. Tímar eftir samkomulagi.
Til athugunar: Skráningar fara fram í Farskólanum í síma: 455-6010.
Ekkert gjald
Náms- og starfsráðgjöf fyrir fullorðna einstaklinga
Langar þig í frekara nám eða viltu styrkja þig í starfi? Viðtal við náms- og starfsráðgjafa sem veitir einstaklingum ráðgjöf og upplýsingar til að auðvelda ákvarðanatöku vegna náms- og starfsvals