Búnaðarsamband – Skyndihjálp – 4 klst

Þetta námskeið er ætlað félagsmönnum í Búnaðarsambandi Skagafjarðar

Lýsing:

Markmið; að þátttakendur öðlist grunnfærni í að beita skyndihjálp og sálrænum stuðningi í neyðartilvikum. 

Undirstöðuatriði: Streita í neyðartilfellum, tilfinningarleg viðbrögð eftir að hafa veitt skyndihjálp, sálrænn stuðningur og að forðast sýkingar. 
Fjögur skref skyndihjálpar; tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp. 

Grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuð: Að athuga viðbrögð, að opna öndunarveg, að athuga öndun, hjartahnoð og blástursaðferð, sjálfvirkt hjartastuð (AED), endurlífgunarkeðjan, hliðarlega og losun aðskotahlutar úr öndunarvegi.  
Skyndihjálp: Stutt umfjöllun um innvortis- og útvortis blæðingar, bruni, höfuðhögg, brjóstverkur (hjartaáfall), bráðaofnæmi og heilablóðfall. 

Leiðbeinandi:

Ingvar Magnússon, skyndihjálpaleiðbeinadi hjá Rauða Krossinum og íþróttakennari

Hvar og hvenær:

Farskólanum við Faxatorg. Sunnudaginn 14.apríl 13:00-17:00.