Sterkari starfsmaður – upplýsingatækni og samskipti

150 kennslustunda námskeið til að efla þig í starfi eða atvinnuleit. Mikil áhersla lögð á samskipti, skipulag og tölvunotkun.

Lýsing: Námsleiðin Sterkari starfsmaður er hönnuð með hliðsjón af þörfum fólks með stutta skólagöngu sem vill auka færni sína til að takast á við breytingar. Það er ætlað fullorðnu fólki á vinnumarkaði eða þeim sem eru í atvinnuleit. Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið til styttingar á námi í framhaldsskóla á móti allt að 12 einingum. Tilgangur námsleiðarinnar er að auka færni námsmanna til að takast á við breytingar, stuðla að jákvæðu viðhorfi námsmanna til starfa, nýjunga, upplýsingatækni, samskipta og símenntunar og gera þá eftirsóknarverðari starfsmenn. Námið er í boði á Norðurlandi vestra þar sem áhugi er fyrir hendi. Nánari upplýsingar á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.
Skráningar standa yfir til febrúarloka.

Eftirfarandi námsþættir verða kenndir:
Námstækni og símenntun  16 st.
Sjálfstyrking og samskipti 16 st.
Vinnustaðamenning og liðsheild  8 st.
Skipulag, frumkvæði og efling í starfi  24 st.
Vafri og netið  8 st.
Rafræn samskipti  8 st.
Myndvinnsla  8 st
Ritvinnsla  24 st.
Töflureiknir 16 st.
Færnimappa 20 st.

Hvar: Á Norðurlandi vestra, þegar þátttöku er náð.

Hvenær: Á haustönn 2012

Lengd: 150 kest.

Verð: 25.000,-

Önnur námskeið

  • Áhugasviðsgreining - Hvar liggur þitt áhugasvið?

  • Brauðbakstur

  • Fuglaskoðun – fyrirlestur og ferð

  • Hollráð Hugos

  • Íslenska fyrir útlendinga 1 - Icelandic for foreigners 1

  • Íslenska fyrir útlendinga 3 - Icelandic for foreigners 3

  • Ítölsk vín og matur

  • Nám og þjálfun á Blönduósi

  • Náms- og starfsráðgjöf á vinnustöðum

  • Náms- og starfsráðgjöf fyrir fullorðna einstaklinga

  • Rafsuða

  • Úr neista í nýja bók

  • Útivist og fjallgöngur

Lesa upp texta