Hvammstangi

Lesa upp texta

Námsverið í Húnaþingi vestra er á Hvammstanga, að Höfðabraut 6. Námsverið er beint fyrir ofan bókasafnið. Í námsverinu er ein kennslustofa, fjarfundabúnaður, tölvur fyrir nemendur, aðstaða til ljósritunar og kaffiaðstaða. Nemendur geta fengið lykla að námsverinu í samráði við umsjónarmann.

Umsjónarmaður námsversins er Sigríður Tryggvadóttir og er síminn hjá henni: 451- 2607 og 692 - 8440.

Helga Hinriksdóttir er verkefnastjóri Farskólans á Hvammstanga. Síminn hjá henni er: 864 - 6014. Helga hefur starfsaðstöðu á Höfðabrautinni.

Það er sveitarfélagið Húnaþing vestra sem rekur Námsverið.