Sauðárkrókur
Námsverið á Sauðárkróki er í húsnæði Farskólans við Faxatorg. Í námsverinu eru fjórar kennslustofur (2010) búnar fjarfundabúnuðum. Fjarnemendur hafa aðgang að fartölvum, FS háhraðaneti, aðstöðu til ljósritunar og lesaðstöðu. Nemendur geta lagað sér kaffi og hafa aðgang að ískáp. Nemendur fá lykla að námsverinu ef þeir kjósa.
Í námsverinu á Sauðárkróki greiða nemendur aðstöðugjald sem er 5.000 kr á önn.
Umsjónarmenn eru starfsmenn Farskólans. Síminn í námsverinu er: 455-6010.