Þjónusta og ráðgjöf

Lesa upp texta

Hjá Farskólanum er boðið uppá fjölbreytta þjónustu og ráðgjöf. Hér til vinstri á síðunni má finna upplýsingar um náms- og starfsráðgjöf og hér að neðan eru upplýsingar um lesblindugreiningu fullorðinna og Markviss ráðgjöf.

Greining á lesblindu fullorðinna

Skólaárið 2011 - 2012 býðst íbúum á Norðurlandi vestra tækifæri til að koma í greiningu vegna lesblindu. Greiningin er ætluð fullorðnum. Farskólinn fékk styrk frá Starfsmenntaráði til verkefnisins á sínum tíma. Einnig fékkst styrkur frá verkefnastjórn um ,,Sáttmála til sóknar í skólamálum í Skagafirði" haustið 2007.

Lesblindugreining er þátttakendum að kostnaðarlausu. Upplýsingar og skráning í síma 455-6011 og 455-6010. Þóra Björk Jónsdóttir, sérkennsluráðgjafi sér um greininguna.

Greiningin fer þannig fram að fyrst er viðtal, síðan er sjálf greiningin sem Þóra Björk vinnur síðan úr. Í þriðja skiptið er síðan viðtal og ráðgjöf. Farskólinn hvetur alla sem telja sig þurfa á því að halda að nýta sér þessa þjónustu.

Markviss ráðgjöf

Bryndís Þráinsdóttir er Markviss ráðgjafi hjá Farskólanum og hefur til þess tilskilin réttindi. Haustið 2007 var unnin greining á fræðsluþörfum hjá Heilbrigðisstofnuninni á Siglufirði og síðan var skipulagt 60 stunda Fagnámskeið í kjölfarið fyrir ófaglært starfsfólk. Finna má fleiri upplýsingar inni á heimasíðu Markviss.