Náms- og starfsráðgjöf fyrir almenning
Viltu kanna möguleika þína?
Hjá Farskólanum – miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra er hægt að panta tíma hjá náms- og starfsráðgjafa. Viðtölin fara fram í húsnæði Farskólans við Faxatorg á Sauðárkróki eða í námsverunum á Norðurlandi vestra.
Ráðgjöfin er fyrst og fremst ætluð fullorðnum einstaklingum sem hafa áhuga á að skoða möguleika til frekara náms eða þróa færni á starfsvettvangi.
Viðtölin eru þátttakendum að kostnaðarlausu.
Í hverju felst aðstoð náms- og starfsráðgjafa?
Náms- og starfsráðgjafi getur meðal annars veitt:
• Upplýsingar um nám og störf.
• Aðstoð til að auðvelda ákvarðanatöku vegna náms- og/eða starfsvals.
• Aðstoð við að kanna áhugasvið, færni og persónulegra styrkleika með tilliti til náms og starfa.
• Aðstoð við mat á möguleikum til náms og starfa.
• Aðstoð við að takast á við hindranir í námi.
• Aðstoð við að setja sér markmið og gera áætlun um nám eða starfsþróun.
• Leiðsögn um árangursrík vinnubrögð í námi t.d. glósugerð og prófundirbúning.
• Stuðning og hvatningu til símenntunar.
• Aðstoð við gerð ferilskráa (CV) og atvinnuumsókna.
• Aðstoð við að leita að áhugaverðu tómstundastarfi.
• Ráðgjöf um persónuleg málefni.
Til að panta tíma eða fá frekari upplýsingar um náms- og starfsráðgjöfina er velkomið að hringja í Farskólann í síma 455 - 6010 eða senda tölvupóst á netfangið rannveig@farskolinn.is.