Farskólinn leitar að nýjum verkefnastjóra/um

Farskólinn leitar að öflugum og jákvæðum einstakling/einstaklingum til að takast á við lifandi og fjölbreytt starf verkefnastjóra í símenntun.

Náin og þétt teymisvinna starfsfólks er ríkjandi í verkefnum Farskólans

Til greina kemur að ráða í fleiri en eina stöðu og starfshlutall og vinnutími getur verið umsemjanlegur

Helstu verkefni

  • Uppbygging og þróun samstarfs við fyrirtæki og stofnanir.
  • Greining fræðsluþarfa fyrirtækja og þróun lausna í samræmi við þær.
  • Skipulag og stýring fræðsluáætlana fyrirtækja og stofnana.
  • Skipulag námskeiðahalds og fræðslustarf stéttarfélaga og annara hagaðila.
  • Viðhalda og efla tengsl við aðrar símenntunarmiðstöðvar starfsmenntasjóði og aðra hagsmunaaðila.
  • Aðstoða við umsjón með heimasíðu, skráningakerfi og samfélagsmiðlum, uppfærslaá efni og samskipti við notendur.
  • Leita eftir samstarfi og fjármögnun fyrir verkefni, m.a. í gegnum innlenda og erlendasjóði.
Menntunar og hæfniskröfur
  • Menntun og haldbær reynsla sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af verkefnastjórnun og/eða fræðslumálum er kostur.
  • Almenn og góð tæknikunnátta og tæknilæsi, þekking á námskerfum er kostur.
  • Frumkvæði, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Framúrskarandi þjónustulund og hæfni til samstarfs og samskipta.
  • Geta til að halda utan um mörg verkefni samtímis, halda yfirsýn og forgangsraða.
  • Reynsla og þekking á atvinnulífi svæðisins er kostur.
  • Mjög gott vald á íslensku í ræðu og riti ásamt góðri enskukunnáttu.

Við bjóðum

  • Fjölbreytt og skemmtilegt starf í öflugu teymi
  • Sveigjanlegt, skapandi starfsumhverfi og tækifæri til að hafa áhrif
  • Mikil tækifæri til símenntunar og persónulegs vaxtar
  • Hlýlegt starfsumhverfi, sveigjanleiki, liðsheild og stuðningur
  • Metnaðarfullt Evrópusamstarf og ferðalög tengd því

Umsóknarfrestur er til og með 5. júní 2025

Með umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðuumsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda. Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um starfið.

Sótt er um starfið á www.mognum.is