Að búa til þinn eigin krans – staðnámskeið – Starfsmenn Skagafjarðar

Verklegt námskeið um kransa og kransagerð þar sem þátttakendur læra að vefja sinn eiginn krans.

Á námskeiðinu verður fræðsla um blómakransa í gegnum tíðina. Kennd verða undirstöðuatriði og tækni við að vefja krans í fallegt handverk. Þátttakendur fá aðstoð og kennslu við að binda sinn eigin krans og verða fær um að gera sína eigin kransa.

Áhersla er á að nota hráefni úr náttúrunni eins og unnt er.

Hráefni í krans er innifalið í námskeiðinu og þátttakendur fara heim með sinn krans í lok námskeiðs.

Leiðbeinandi: Alma Lilja Ævarsdóttir blómahönnuður. Eigandi blómaverkstæðisins Salvíu.

Hvar og hvenær: 

9.sept. 13:00-17:00 – Hvammstangi

10.sept. 13:00-17:00 – Blönduós

13.sept 17:00-21:00 – Sauðárkrókur

Lengd: 4.klst