Árásir á íslenska menningu

Hvað gerist þegar lítil eyþjóð mætir heimsveldum menningarinnar? Í gegnum 20. öldina hafa reglulega komið upp tímabil þar sem hluta þjóðarinnar fannst sjálfsmynd okkar, tungu og siðum verulega ógnað. 

Á þessu námskeiði kafar Ágúst ofan í þessa áhugaverðu sögu. Við skoðum sérstaklega „innrásina“ sem fylgdi komu Kanasjónvarpsins, mótmælin, deilurnar og hvernig íslenskt samfélag breyttist í kjölfarið. Var um raunverulega ógn að ræða eða eðlilega þróun? 

Leiðbeinandi: Ágúst Ingi Ágústsson cand. mag í sagnfræði

Hvar og hvenær: 23. mars klukkan 17:00-19:00  

Verð: 17.900kr*

*ATH: Stéttarfélögin Aldan, Samstaða, Kjölur, Sameyki, Verslunarmannafélag Skagafjarðar og stéttarfélög sem eru aðilar að Iðunni greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. (Athugið að þetta á við greiðandi félagsmenn í flestum tilfellum og hefur ekki áhrif á persónulegan námsstyrk félagsmanna) Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi