Námskeiðið er fyrir starfsfólk Skagafjarðar og er hluti af fræðsluáætlun sveitarfélagsins.
Á þessu námskeiði verður farið yfir mismunandi hamingjuskilgreiningar jákvæðrar sálfræði, og hvernig hugtakið blómstrun (e. flourish) nær að halda utan um þó nokkrar þeirrar. Farið verður yfir þá þætti sem stuðla að því að við blómstrum í lífi og starfi. Sérstaklega verður fjallað um jákvæðar hugsanir, fulla athygli og virkni í því sem við tökum okkur fyrir hendur, félagsleg tengsl og samskipti, tilgang, árangur og markmiðasetningu.
Leiðbeinandi: Haukur Pálmason er tónlistarmaður, kennari og tölvunarfræðingur sem jafnframt hefur lokið diploma á meistarastigi í jákvæðri sálfræði við Endurmenntun HÍ.
Hvar og hvenær: 8. mars frá kl. 17:00-19:00
Lengd: 2.klst.