Þetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).
ATH! Vegna aukinnar útbreiðslu Covid þá hefur námskeiðinu verið frestað, en verður haldið um leið og aðstæður í samfélaginu lagast og verður þá haft samband við þá sem hafa skráð sig.
Lýsing: Á námskeiðinu verður skoðuð samþætting þjónustu við aldraða sem búa í heimahúsi. Margir glíma við miklar breytingar á efri árum. Líkamleg heilsa fer hrakandi og oft hefur einstaklingurinn upplifað missi, sorg, einmanaleika og depurð. Farið er að draga úr virkni hans og kvíði yfir að missa tök á færni getur aukist. Þunglyndi og jafnvel uppgjör við lífið sjálft er eitthvað sem oft þarf að takast á við sem og að verða háðir umönnun nánustu ættingja og/eða fagfólks. Mikilvægt er að í allri umönnun sé haft í huga að sá aldraði fái að tjá sig og gera það sem hann getur sjálfur.
Leiðbeinandi: Salbjörg Bjarnadóttir, geðhjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri hjá Embætti landlæknis.
Hvar og hvenær:
- 8:00 – 16:00 HSN Sauðárkróki
- 8:00 – 16:00 Húsnæði HSN á Akureyri
- 8:00 – 16:00 HSN Húsavík
Lengd: 8 klst