HSN – Sérfæði

Þetta námskeið er ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).

Efni: Fæði með breyttri áferð og fljótandi fæði og fæði fyrir íbúa hjúkrunarheimila Atriði sem skipta máli varðandi næringu aldraðra sjúklinga

-Fæði við hæfi: Almennt, kunnuglegt fæði.

-Hæfileg áferð miðað við þarfir einstaklings (tennur/kynging): Mjúkt fæði (M1), fæði með breyttri áferð (M2) eða fínt mauk (M3). M3 er fínasta maukfæðið með áferð svipaða og barnamatur

-Hæfileg skammtastærð. Oft er lítill skammtur hæfilegur og viðbótar spónamatur vel þeginn.

-Góður tími sé gefinn til að borða.

-Hjálp á matmálstímum: Skera fæðu í hæfilega stóra bita, stappa mat, gefa auka sósu eða smjör, opna ílát o.fl.

-Útskýra hvað er á disknum fyrir þeim sem eru sjóndaprir og gæta vel að orðavali við þær lýsingar.

-Fylgjast vel með því hvernig viðkomandi gengur að nærast og hvort skammtar séu jafnvel of stórir. Of stórir skammtar geta dregið úr matarlyst.

Fljótandi fæði er:

-Notað við sjúkdómum í munni, kjálkum og koki, ásamt þrengslum í vélinda og efri hluta meltingarvegs.

-Ætlað sjúklingum sem eiga við mikla tyggingar-og kyngingarerfiðleika að stríða.

-Ætlað sjúklingum sem ekki haf lyst á almennri, fastri fæðu en þurfa auðmeltanlega næringu og vökva.

-Einnig notað fyrir og eftir skurðaðgerðir, við alvarleg brunasár og fyrir sjúklinga sem ekki geta borðað fasta fæðu af öðrum ástæðum. Sumir sjúklingar sem undirgangast stífa krabbameinsmeðferð í munni, koki og vélinda þola aðeins fljótandi fæði og sumir þola aðeins kalt fljótandi fæði (TONES).

-Ætlað sjúklingum sem eru að koma úr hálskirtlatöku og eiga að nærast eingöngu á köldum súpum fyrst í stað. •Eitt og sér ekki að uppfylla næringarlegar þarfir sjúklinga og því er það einungis notað í skamman tíma. Auðvelt er að nota fljótandi fæði samhliða sondufæði. Tært fljótandi fæði byggir á síaðri ávaxtasúpu, kjötseyði og eplasafa

Leiðbeinandi: Marína Sigurgeirsdóttir

Hvar og hvenær:

Blönduós 23. maí kl. 14:00-16:00

Sauðárkrókur 24.maí kl. 14:00-16:00

Námskeiðin fara fram í eldhúsum HSN á framgreindum stöðum. Notast er við þann mat sem hefur verið matreiddur samdægurs við kennslu á námskeiðinu sem fer fram sem sýnikennsla.