HSN – Skyndihjálp 12 klst

Þetta námskeið er ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).

Lýsing: Skyndihjálparnámskeið í fullri lengd fyrir þá sem þurfa að halda sér vel við og þá sem hafa ekki farið á námskeið í nokkurn tíma, eða fyrir meira en þremur árum. 

Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra skyndihjálp og endurlífgun og öðlast þekkingu og góða færni í að veita nærstöddum aðstoð í bráðatilfellum. Námskeið fyrir þá sem vilja gefa sér góðan tíma í að læra skyndihjálp.

Viðfangsefni: Kynning; hvað er skyndihjálp?

Undirstöðuatriði; streita í neyðartilfellum, tilfinningarleg viðbrögð eftir að hafa veitt skyndihjálp, sálrænn stuðningur og að forðast sýkingar.

Fjögur skref skyndihjálpar; tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp.

Grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuð; að athuga viðbrögð, að opna öndunarveg, að athuga öndun, hjartahnoð og blástursaðferð, sjálfvirkt hjartastuð (AED), endurlífgunarkeðjan, hliðarlega og losun aðskotahlutar úr öndunarvegi.

Skyndihjálp: Áverkar; innvortis- og útvortis blæðingar, sár, brunasár, áverkar á höfði, hálsi eða baki, áverkar á beinum, vöðvum eða liðum, eitranir hitaslag/hitaörmögnun og ofkæling. Bráð veikindi; brjóstverkur (hjartaáfall), bráðaofnæmi, heilablóðfall, flog, sykursýki og öndunarerfiðleikar (astmi).

Skyndihjálp framhald; nánari líkamsskoðun, eitrun, blóðnasir, lost, sár og sáraumbúðir, raflost, höfuðáverkar, tannáverkar, skorðun á hrygg, áverkar á brjóstkassa og kvið, vöðvakrampar, sýklasótt, yfirlið og spelkun útlima. 

Leiðbeinandi: Sauðárkróki Karl Lúðvíksson

Hvar og hvenær: Námskeiðið verður haldið dagana 17-19.október og verður boðið uppá tvær tímasetningar. 13:00-17:00 og 17:00-21:00.

Lengd: 12 klst