Það borgar sig að vanda til verka þegar við ráðumst í okkar stærstu fjárhagslegu ákvarðanir. Hjá mörgum getur íbúðalánið haft afgerandi áhrif á fjármál heimilisins en erfitt getur reynst að átta sig á hvað hentar best á hverjum tíma. Á námskeiðinu verður rætt um allt það helsta sem tengist íbúðalánum almennt og aðstæðum í dag.
Meðal þeirra spurninga sem svarað verður eru:
– Hver er munurinn á verðtryggðu og óverðtryggðu láni og hvort hentar betur?
– Er betra að festa vexti eða taka lán á breytilegum vöxtum?
– Hvenær og hvernig endurfjármagna ég lánið mitt?
– Hvað kemur til með að hafa áhrif á lánið til framtíðar?
– Hvernig get ég fylgst með helstu áhrifaþáttum og gripið inn í þegar tilefni er til?
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið hentar fólki á öllum aldri, sem hyggur á íbúðakaup eða hefur þegar tekið íbúðalán.
Ávinningur þátttakenda
Þátttakendur verða betur í stakk búnir til að taka upplýstar ákvarðanir um hvers kyns lán hentar þeim best á hverjum tíma.
Leiðbeinandi :
Björn Berg Gunnarsson hefur 16 ára reynslu af ráðgjöf og fyrirlestrahaldi um fjármál. Hann starfaði lengi sem ráðgjafi á verðbréfa- og lífeyrissviði Íslandsbanka, var fræðslustjóri bankans í yfir áratug og stýrði greiningardeild hans.
Hann hefur BS próf í viðskiptafræði, próf í verðbréfaviðskiptum og meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði.
Björn er reglulegur álitsgjafi um fjármál í fjölmiðlum, pistlahöfundur og er höfundur bókarinnar Peningar.
Hvar og hvenær: 15.nóvember – vefnámskeið 17:00-18:00
Lengd: 1.klst.