Lífsþjálfun með Erlu – vefnámskeið

Námskeið fyrir þá sem vilja vaxa og styrkja sig persónulega. Þátttakendur kynnast leiðum lífsþjálfunar til að efla sjálfstraust sitt, setja sér framtíðarmarkmið og hvernig þeir geta með einföldum skrefum bætt líf sitt. Boðið er upp á áhugaverða sjálfsvinnu og fá þátttakendur verkefnahefti til að vinna í. Þetta námskeið er fyrir þig ef þig langar í áhugaverða sjálfsvinnu þar sem þú vinnur meðal annars að því:  

  • Að styrkja og efla sjálfstraust þitt.  
  • Auka vitund þína 
  • Setja þér framtíðarmarkmið 
  • Vaxa sem manneskja 
  • Gera jákvæðar breytingar í lífinu 
  • Sigrast á áskorunum 

Eftir námskeiðið hafa þátttakendur fengið tækifæri til að kynnast lífsþjálfun og verkfærum hennar. Þeir hafa fengið leiðsögn við að setja sér framtíðarmarkmið, gera jákvæðar breytingar í lífi sínu og hvernig hægt er að styrkja og efla sjálfstraust sitt. 

Leiðbeinandi :

Dagbjört Erla Gunnarsdóttir, menntaður lífsþjálfi, kennari og snyrtifræðimeistari 

Hvar og hvenær: 29. janúar og 5. febrúar frá kl. 16.30-18.00

Lengd: 3.klst.

Verð: 22.500 kr*

*ATH: Stéttarfélögin Aldan, Samstaða, Kjölur, Sameyki, Verslunarmannafélag Skagafjarðar og stéttarfélög sem eru aðilar að Iðunni greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. (Athugið að þetta á við greiðandi félagsmenn í flestum tilfellum og hefur ekki áhrif á persónulegan námsstyrk félagsmanna) Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi