Vorverkin í garðinum – Vefnámskeið

Á námskeiði Auðar er farið yfir ótal þætti sem varða vorverkin í garðinum. Þá er rétti tíminn til að klippa limgerðin og snyrta runnana og trén. Hlúa að sígrænum gróðri með striga eða þvottakörfum til að aftra því að nálarnar sólbrenni. Forrækta vorlaukana, dalíur, gladiólur og begoníur sem sannarlega boða sumarkomuna. Skoða úrvalið af matjurta-, krydd- og sumarblómafræi og fara yfir forræktun þeirra. Nemendur fá lista yfir sáningatíma helstu tegunda og góð ráð við ræktunina. Skoðum hvers vegan kartöflurnar eiga spíra á björtum stað en ekki í beinni sól og nemendur læra að bleikja rabarbaranna svo hann verði enn bragðbetri.

Á námskeiði Auðar er farið yfir ótal þætti sem varða vorverkin í garðinum. Þá er rétti tíminn til að klippa limgerðin og snyrta runnana og trén. Hlúa að sígrænum gróðri með striga eða þvottakörfum til að aftra því að nálarnar sólbrenni. Forrækta vorlaukana, dalíur, gladiólur og begoníur sem sannarlega boða sumarkomuna. Skoða úrvalið af matjurta-, krydd- og sumarblómafræi og fara yfir forræktun þeirra. Nemendur fá lista yfir sáningatíma helstu tegunda og góð ráð við ræktunina. Skoðum hvers vegna kartöflurnar eiga spíra á björtum stað en ekki í beinni sól og nemendur læra að bleikja rabbabarann svo hann verði enn bragðbetri.  

Sumir hræðast kóngulær og hafa eitrað utanhúss hátt og lágt. Þar sem eitur er hvimleitt og ætti eingöngu að vera nauðvörn þá lumum við á góðu ráði til að stemma stigu við kóngulóafári. Gróðursetning að vori tekin fyrir og skoðað hvað hægt sé að gera við greinar sem falla til er limgerðin eru klippt. 

Leiðbeinandi: Auður I. Ottesen garðyrkjufræðingur og ritstjóri Sumarhússins og garðsins

Hvar og hvenær: 19.apríl 17:00-18:30

Lengd: 90. mín.

Verð: 13.900 kr*

*ATH: Stéttarfélögin Aldan, Samstaða, Kjölur, Sameyki og Verslunarmannafélag Skagafjarðar greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi.