Í aðdraganda jólanna er skemmtilegt að búa til sínar eigin jólakræsingar til að njóta eða gefa. Tilvalið til að gera vel við vini og ættingja eða á sjálft jólaborðið með fjölskyldunni.
Á námskeiðinu lærir þú m.a. að innbaka gæsapaté, útbúa glæsilegt sjávarréttasalat, útbúa heimagert rauðkál og peru cuthney.
Leiðbeinandi: Þórhildur M. Jónsdóttir, matreiðslumeistari
Hvar og hvenær:
24.nóv – Hvammstangi kl. 17.00-21.00
25.nóv – Blönduós kl. 17.00-21.00
26.nóv – Skagaströnd kl. 17.00-21.00
27.nóv – Sauðárkrókur kl. 17.00-21.00
Verð: 25.900 kr*
*ATH: Stéttarfélögin Aldan, Samstaða, Kjölur, Sameyki, Verslunarmannafélag Skagafjarðar og stéttarfélög sem eru aðilar að Iðunni greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. (Athugið að þetta á við greiðandi félagsmenn í flestum tilfellum og hefur ekki áhrif á persónulegan námsstyrk félagsmanna) Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi

 
								 
								 
								