Námskeiðið byggir á grunni lífsþjálfunar með það að markmiði að þátttakendur öðlist fleiri hagnýt verkfæri til að bregðast við streituvaldandi aðstæðum og kvíðavaldandi hugsunum.
Ávinningur:
- Að auka skilning á eðli streitu og kvíða
- Að auka meðvitund um streitu- og kvíðavaldandi hugsanir
- Að kynnast valdeflandi leiðum til að virkja innri styrk og draga úr streitu og kvíða
- Að byggja upp seiglu og ró með hugsanastjórnun
Leiðbeinandi: Huld Aðalbjarnardóttir, lífsþjálfi
Hvar og hvenær: Mánudaginn 27. október frá kl 17:00-19:00