HSN -Farsæld Barna – vefnámskeið

Þetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).

Á Íslandi hafa lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna tekið gildi. Barnið er hjartað í kerfinu.  

Öll börn eiga rétt á að fá þá þjónustu sem þau þurfa þegar á þarf að halda.  

Lögin eiga að tryggja að börn og foreldrar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum -og falli ekki á milli kerfa.  

Ragnheiður Diljá, tengiliður farsældar á HSN Akureyri, fer yfir undirstöðuatriði farsældarlaganna og hvaða áhrif þau hafa á störf okkar á heilsugæslu. 

Kennari: Ragnheiður Diljá Gunnarsdóttir, ljósmóðir 

Hvar og hvenær: 4 febrúar klukkan 13:00-14:00

Vefnámskeið