Lýsing: Upprifjun á þekkingu og viðhaldi hennar og hugsað fyrir þá sem að hafa farið á stórt námskeið fyrir ekki of löngu síðan. Miðað er við að fara á þetta námskeið í skyndihjálp á þriggja ára fresti.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra eða rifja upp grunnatriði skyndihjálpar og sálræns stuðnings og öðlast lágmarksfærni í að veita slösuðum eða veikum aðstoð í bráðatilfellum. Stutt og gott námskeið fyrir alla.
Viðfangsefni: Kynning; hvað er skyndihjálp?
Undirstöðuatriði; streita í neyðartilfellum, tilfinningarleg viðbrögð eftir að hafa veitt skyndihjálp, sálrænn stuðningur og að forðast sýkingar.
Fjögur skref skyndihjálpar; tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp.
Grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuð; að athuga viðbrögð, að opna öndunarveg, að athuga öndun, hjartahnoð og blástursaðferð, sjálfvirkt hjartastuð (AED), endurlífgunarkeðjan, hliðarlega og losun aðskotahlutar úr öndunarvegi.
Skyndihjálp; stutt umfjöllun um innvortis- og útvortis blæðingar, bruni, höfuðhögg, brjóstverkur (hjartaáfall), bráðaofnæmi og heilablóðfall.
Verð: 19.900
Leiðbeinendur: Karl Lúðvíksson.
Hvar og hvenær:
Lengd: 4 klst