Hér er um að ræða 40 klst nám sem byggt er á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar.
Markmið: Er að auka færni þátttakenda í að takast á við hamlandi líðan með því að nýta sér aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) í daglegu lífi. Fjallað verður um þunglyndi og kvíða, markmiðasetningu, breytta hugsun, sjálfsmat og sjálfseflingu og bakslagsvarnir.
Námið samanstendur af fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu bæði í kennslustundum og utan þeirra.
Helstu námsþættir/umfjöllunarefni:
- Þunglyndi og kvíði.
- Markmið.
- Breytt hugsun – bætt líðan.
- Sjálfsmat og sjálfsefling.
- Bakslagsvarnir.
Leiðbeinandi: Líney Úlfarsdóttir Sálfræðingur
Lengd: Námið er samtals 40 klukkustundir að lengd og þar af 24 klukkustundir með leiðbeinanda.
Verð: 11.800.kr ef þátttakandi er í markhópi framhaldsfræðslunnar, en 55.000 kr. ef svo er ekki. Markhópur framhaldsfræðslunnar er fólk sem ekki hefur lokið stúdentsprófi eða iðnmenntun.
Hvar og hvenær: Námið verður kennt á netinu í gegnum ZOOM. Kennt verður tvö kvöld í viku í 12 skipti, þriðjudaga og fimmtudaga 18:00-20:00, hefst 10.febrúar 18:00-20:00
