Matarboð og gervigreind: Snjallari eldamennska fyrir alla

Viltu læra að elda næringarríkar máltíðir, skipuleggja mataræðið af öryggi og nýta nýjustu tækni til að spara tíma án þess að fórna gæðum? 

Á þessu námskeiði kynnumst við gervigreind sem okkar nýja uppáhalds hjálparkokk. Gervigreindin kemur ekki í stað handverksins eða bragðskynsins, heldur virkar hún sem ótæmandi uppspretta hugmynda. 

Hvernig reiðir þú fram veislu þegar gestirnir hafa ólíkar þarfir? Á matseðlinum þarf mögulega að taka tillit til: 

  • Vegan fæðis 
  • Ketó og lágkolvetna áhersla 
  • Óþols (glúten, selíak, mjólkurvörur o.fl.) 
  • Næringargildis og hitaeiningafjölda 

Við sýnum þér hvernig þú leysir svona aðstæður á einfaldan og skipulagðan hátt með aðstoð tækninnar. 

Það sem þú lærir: 

  • Grunnmáltíðir með tilbrigðum: Aðferðir til að búa til öfluga grunnumgjörð sem auðvelt er að aðlaga að ólíkum matarþörfum án þess að elda fimm mismunandi rétti. 
  • Skilningur á mataræði: Innsýn í helstu áherslur mismunandi fæðisvals. 
  • Snjallari matargerð: Lærðu að nota réttu skipanirnar til að fá gervigreindina til að hanna matseðla, innkaupalista og uppskriftir sem virka. 
  • Verkleg þjálfun: Við nýtum tæknina og eldhúsið samhliða til að raungera hugmyndirnar. 

Fyrir hverja? 

Námskeiðið er fyrir allt áhugafólk um mat og heilsu, heimiliskokka sem vilja nýja innblástur og þátttakendur í heilsueflingu. Engin forþekking á gervigreind er nauðsynleg – við byrjum á byrjuninni. 

Leiðbeinandi: Ásta Búadóttir

 Hvar og hvenær: 

Sauðárkrókur: 16 mars kl: 17:00-20:00
Blönduós. 17. mars kl: 17:00-20:00
Skagaströnd. 18 mars kl: 17:00-20:00
Hvammstangi 19.mars kl: 17:00-20:00

Verð: 23.900 kr*

*ATH: Stéttarfélögin Aldan, Samstaða, Kjölur, Sameyki, Verslunarmannafélag Skagafjarðar og stéttarfélög sem eru aðilar að Iðunni greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. (Athugið að þetta á við greiðandi félagsmenn í flestum tilfellum og hefur ekki áhrif á persónulegan námsstyrk félagsmanna) Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi