Viltu rækta þitt eigið heilnæma grænmeti án þess að nota tilbúinn áburð eða eiturefni?
Á þessu námskeiði er farið yfir grunnatriði lífrænnar grænmetisræktunar við íslenskar aðstæður með áherslu á heildarnálgun, jarðveg og næringu, illgresiseyðingu og raunhæfar aðferðir sem skila árangri. Áhersla er lögð á að vinna með náttúrunni, bæta jarðvegslífið og skapa sjálfbært viskerfi.
Markmiðið er að þátttakendur öðlist skilning á grundvallarferlum lífrænnar ræktunar og geti hafið eða bætt eigin matjurtarækt, hvort sem um er að ræða svalakassa eða stóran garð.
Aðgangur er ókeypis þökk sé styrk frá SSNV, en nauðsynlegt er að skrá sig.
ATH. Takmarkað sætaframboð
Leiðbeinandi: Elínborg Erla Ásgeirsdóttir
Hvar og hvenær:
Kennt verður í Farskókanum á Sauðárkróki
Þriðjudaginn 17. mars klukkan 18:30-20:30
