Viltu lengja ræktunartímabilið án þess að hækka rafmagnsreikninginn?
Á þessu námskeiði lærum við hvernig má nýta sólarorkuna og einangrun til að byrja fyrr á vorin að rækta grænmeti og uppskera langt fram eftir hausti.
Fjallað verður um hitastjórnun án kyndingar í köldum gróðurhúsum, loftræstingu, rakastjórnun og tegundaval.
Einnig verður farið yfir hvernig vermireitir með lífrænum undirhita geta nýst til forræktunar og veitt forskot á vorin.
Þátttakendur fá hagnýtar leiðbeiningar um hvernig nýta má einfaldar og hagkvæmar aðferðir til að bæta ræktunarskilyrði og auka uppskeru.
Aðgangur er ókeypis þökk sé styrk frá SSNV, en nauðsynlegt er að skrá sig.
ATH. Takmarkað sætaframboð
Leiðbeinandi: Elínborg Erla Ásgeirsdóttir
Hvar og hvenær:
Kennt á Sauðárkróki eða nágreni
22. apríl klukkan 18:30-20:30
