Skiptiræktun – Listin að skipuleggja matjurtagarðinn

Hvers vegna ættir þú aldrei að rækta kál á sama stað tvö ár í röð?
Á þessu námskeiði er fjallað um skiptiræktun og hvernig hún er notuð til að viðhalda frjósemi jarðvegs og draga úr vandamálum af völdum meindýra og sjúkdóma.

Við svörum spurningum á borð við: hver er ágóðinn af skiptiræktun og hvernig virkar hún gegn lífsferli meindýra, hverju skiptir af hvaða ætt plönturnar eru og hvernig flokkum við þær, hve löng er hringrásin og hvernig vinna mismunandi plöntur á ólíkan hátt með jarðveginum.

Þátttakendur læra hvernig setja má upp einfalt og hagnýtt skipulag sem hentar bæði litlum og stærri ræktunarsvæðum, og hvernig skiptiræktun styður við heilbrigða og sjálfbæra ræktun til lengri tíma.

Aðgangur er ókeypis þökk sé styrk frá SSNV, en nauðsynlegt er að skrá sig.

ATH. Takmarkað sætaframboð

Leiðbeinandi: Elínborg Erla Ásgeirsdóttir

Hvar og hvenær:

Kennt í Farskólanum  á Sauðárkróki

7. maí klukkan 18:30-20:30