Sveppatínsla fyrir byrjendur

Hefur þig langað til að tína villta matsveppi en veist ekki hvar þú átt að byrja?

Á þessu námskeiði er farið yfir grunnatriði sveppatínslu og hvernig þekkja má algengar tegundir matsveppa við íslenskar aðstæður.

Fjallað verður um helstu greiningareinkenni sveppa, hvernig greina má matsveppi frá óætum tegundum og hvaða varúðarráðstafanir eru nauðsynlegar við sveppatínslu. Einnig verður farið yfir hvar líklegt er að finna mismunandi tegundir og hvernig best er að nálgast sveppatínslu á sjálfbæran og ábyrgan hátt.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist grunnþekkingu og öryggi til að hefja sveppatínslu og geti nálgast hana af ábyrgð og með virðingu fyrir náttúrunni. Börn eru velkomin með foreldrum sínum á námskeiðið.

Aðgangur er ókeypis þökk sé styrk frá SSNV, en nauðsynlegt er að skrá sig.

ATH. Takmarkað sætaframboð

Leiðbeinandi: Elínborg Erla Ásgeirsdóttir

Hvar og hvenær:

Skagafirði-Staðarnámskeið

ágúst- nánari tímasetning auglýst síðar