Nýting villtra jurta, sveppa og berja

Á þessu námskeiði er fjallað um hvernig nýta má villtar jurtir, sveppi og ber sem hráefni til matargerðar og vinnslu.

Þátttakendur kynnast algengum nytjategundum sem vaxa við íslenskar aðstæður og læra hvenær best er að safna þeim, hvar líklegt er að finna þær og hvernig best er að meðhöndla hráefnið eftir tínslu.

Einnig verður farið yfir mismunandi leiðir til nýtingar, svo sem þurrkun, frystingu og aðrar einfaldar verkunaraðferðir sem gera kleift að varðveita hráefnið og nýta það síðar.

Áhersla verður lögð á sjálfbæra nýtingu og ábyrga umgengni við náttúruna.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist þekkingu og öryggi til að safna og nýta villt hráefni sem hluta af matargerð og daglegu lífi.

Aðgangur er ókeypis þökk sé styrk frá SSNV, en nauðsynlegt er að skrá sig.

ATH. Takmarkað sætaframboð

Leiðbeinandi: Elínborg Erla Ásgeirsdóttir

Hvar og hvenær:

Skagafirði- Staðarnámskeið

ágúst- nánari tímasetning auglýst síðar