Frá einföldu hakki í eftirsótta lúxusvöru
Á þessu námskeiði lærum við að nýta það kjöt sem alla jafna fer í hefðbundið hakk og breyta því í dýrindis hrápylsur. Þetta er snjöll leið til að auka verðmæti þeirra bita sem annars seljast á lægra verði, með því að galdra fram bragðmikið álegg, pepperoni og snakkpylsur sem hafa háa framlegð og mikla eftirspurn.
Þetta er tilvalið námskeið fyrir þá sem vilja ná meiru út úr sinni framleiðslu, en jafnframt frábært fyrir áhugafólk sem hefur gaman af því að brasa heima og gera hágæða mat úr góðu hráefni.
Á námskeiðinu er farið yfir:
- Grunnaðferðir: Rétt hlutföll í hakki, kryddun, ræktun og fyllingu í garnir.
- Verðmætaaukning: Hvernig má lyfta hakki upp í hágæða munaðarvöru sem geymist vel.
- Fjölbreytni: Við útbúum nokkrar tegundir af hrápylsum (t.d. sterkt pepperoni eða bragðmikið pylsusnakk).
- Lokaverkun: Þátttakendur taka afurðirnar með sér heim til þurrkunar og þroskunar.
Hvort sem þú vilt auka hagnað af eigin búskap eða ert matgæðingur sem vill búa til eigið sælgæti frá grunni, þá er þetta námskeiðið fyrir þig!
Leiðbeinandi: Sigfríður Jódís Halldórsdóttir, kjötiðnaðarmeistari
Hvar og hvenær:
21.mars klukkan 9:00-17:00 í Vörusmiðjunni á Skagaströnd
Námskeiðið er styrkt af SSNV
Þátttakendur greiða því aðeins efniskostnað
Verð: 24.900 kr
