Dry Aged: Listin að fullkomna bragðið
Lærðu leyndarmálin á bak við dýrustu steikur heims
Hvað er það sem gerir „dry aged“ kjöt svona eftirsótt og af hverju er bragðið svo einstakt? Á þessu námskeiði köfum við ofan í ferlið þar sem tími, hitastig og loftflæði breyta venjulegu kjöti í algjöra munaðarvöru.
Við förum yfir hvernig má auka virði og bragðgæði kjötsins með þurrmeyrun, hvort sem markmiðið er að bjóða viðskiptavinum upp á eitthvað ómótstæðilegt eða töfra fram fullkomna steik heima í eldhúsi.
Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:
- Vísindin og ferlið: Hvað gerist í kjötinu á meðan það þroskast? Við ræðum gerjun, ensím og hvernig bragðið dýpkar.
- Val á hráefni: Hvaða bitar henta best í „dry aging“ og hvaða hluti skrokksins má nýta í bragðmikla hrápylsugerð (salami/pepperoni) samhliða.
- Aðbúnaður: Allt um kæla, rakastig og þau tæki sem þarf til að ná árangri.
Þetta námskeið er algjör nauðsyn fyrir þá sem vilja hámarka verðmæti kjötsins, hvort sem það er til sölu eða eigin nota, og bjóða upp á bragðupplifun sem gleymist ekki.
Lengd: 2 klst
Leiðbeinandi: Sigfríður Jódís Halldórsdóttir, kjötiðnaðarmeistari
Aðgangur er ókeypis þökk sé styrk frá SSNV, en nauðsynlegt er að skrá sig.
Hvar og hvenær:
Farskólinn 7. apríl klukkan 18:30
