Vissir þú að hrossakjöt er eitt hollasta, bragðmesta og hagkvæmasta hráefni sem völ er á? Á þessu námskeiði tökum við hálft hross og sýnum þér hvernig þú getur breytt því í dýrindis máltíðir fyrir fjölskylduna eða í söluvöru.
Fagmenntaður kjötiðnaðarmaður fer yfir:
- Steikurnar: Hvar finnum við lundina, fille-ið og bestu bitana á pönnuna og grillið?
- Geymsluaðferðir: Lærðu að salta og undirbúa kjöt til reykingar.
- Hefðir og nýjungar: Við förum yfir hvaða vöðva við getum notað í „Dry-aged“ og jerky. við gröfum vöðva, gerum klassísk bjúgu, bragðgóða sperðla og fleira.
- Smökkun: Að sjálfsögðu endum við á því að smakka afraksturinn saman!
Komdu og lærðu hvernig þú getur nýtt hrossakjötið á nýstárlegan hátt, allt frá fínasta steikarmat yfir í heimagerð bjúgu.
Hvar og hvenær: 19.apríl 9:00-17:00. í Vörusmiðjunni á Skagaströnd
Fjöldi: 8 þátttakendur
Námskeiðið er styrkt af SSNV
Þátttakendur greiða því aðeins efniskostnað
Verð: 24.900 kr
(Ath. Þátttakendur taka afurðir eigin vinnu með sér heim)
Verkefnið er skyrkt af SSNV
Leiðbeinandi: Sigfríður Halldórsdóttir, kjötiðnaðarmeistari
