Halldór Brynjar Gunnlaugsson - framkvæmdastjóri
Halldór hóf störf hjá Farskólanum - miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra vorið 2011. Halldór tök við stöðu framkvæmdastjóra Farskólans í septemberbyrjun 2024. Halldór er fæddur og uppalinn í Skagafirði. Halldór útskrifaðist sem kennari frá Háskólanum á Akureyri auk þess sem hann lauk viðskiptafræði frá sama skóla. Halldór bjó nokkur ár í Danmörku og lauk þaðan meistaraprófi í markaðsfræði frá Árósarháskóla.
Halldór skipuleggur og hefur umsjón með námskeiðum og markaðsstarfi hjá Farskólanum ásamt fleiri verkefnum eins og kennslu og aðstoð við háskólanema. Halldór hefur umsjón með fræðsluáætlunum sveitarfélagsins Skagafjarðar, námskeiðum fyrir stéttarfélög og HSN ásamt fleiri verkefnum.
Síminn hjá Halldóri er 455-6013. Netfang Halldórs er halldorb(hjá)farskolinn.is
Bryndís Kristín Williams Þráinsdóttir - verkefnastjóri
Bryndís hóf störf hjá Farskólanum - miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra 1. ágúst 2001.
Bryndís er fædd og uppalin í Reykjavík og síðar í Ólafsvík. Bryndís lauk B.Ed. gráðu frá Kennaraháskóla Íslands árið 1981. Hún kenndi við Grunnskólann í Ólafsvík og síðar við Háskólann á Bifröst. Frá 1993 kenndi Bryndís við Árskóla á Sauðárkróki.
Bryndís gegndi starfi framkvæmdastjóra Farskólans frá 2003 - .september 2024. Hún lýkur störfum í septemberlok. Bryndís lauk meistaranámi í menntunarfræðum frá Háskóla Íslands, með áherslu á fræðslustarf með fullorðnum og mannauðsþróun, haustið 2009. Lokaritgerð Bryndísar fjallaði um námskeiðsmat.
Bryndís hefur sótt nokkur námskeið á Menntavísindasviði HÍ um kennslu í myndmennt og á vorönn 2023 sótti hún námskeiðið: að kenna íslensku sem annað mál. Einnig hefur Bryndís lokið námskeiði um markþjálfun í tungumálanámi frá Studieskolen.
Síminn hjá Bryndísi er: 455-6010 og 894-6012. Netfangið hjá Bryndísi er: bryndis(hjá)farskolinn.is
Þórhildur M. Jónsdóttir - verkefnastjóri
Þórhildur M. Jónsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri til Farskólans. Þórhildur er matreiðslumeistari að mennt og með BA í ferðamálafræði frá Háskólanum á Hólum, auk þess sem hún hefur lokið verkefnastjórnun og leiðtoganámi.
Í vor lýkur hún námi í markaðsfræði frá Háskólanum á Bifröst. Þórhildur hefur kennt á matarhandverksnámskeiðum Farskólans undanfarin ár og hefur langa reynslu af verkefnastjórn.
Síminn hjá Þórhildi er 455-6011. Netfang Þórhildar er tota(hjá)farskolinn.is