Bændur, smáframleiðendur á Norðurlandi vestra, Farskólinn og TERRA MADRE á Ítalíu 26. – 30. september 2024

Farskólinn – miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra í samstarfi við ERASMUS+, styrkjaáætlun ESB, mun fara í ferð til Ítalíu  á Terra madre matarhandverkssýninguna, með allt að 20 þátttakendur.
 
Markmiðið með ferðinni er að auka þekkingu bænda/smáframleiðanda á Norðurlandi vestra á smáframleiðslu annarra landa og fá nýjar hugmyndir að því hvernig hægt er að auka verðmætasköpun matarhandverks; beint frá býli og nýsköpun í íslenskri smáframleiðslu á svæðinu með því að fullvinna betur afurðir framleiddar á svæðinu
 
Ferðin er styrkt af ERASMUS+ Áætlun Evrópusambandsins og því mun kostnaður þátttakenda af ferðinni verða mjög takmarkaður.
 
Áhugasamir sæki um þátttöku með því að senda póst á halldorb@farskolinn.is fyrir 30.ágúst, þar sem fram kemur: nafn þátttakanda, kennitala, símanúmer og stutt lýsing á því hvað viðkomandi hefur verið að gera í smáframleiðslu síðastliðin ár.
 
Ef viðkomandi hlýtur brautargengi mun Farskólinn fara fram á 20 þús kr. óendurkræfs staðfestingargjalds til að lágmarka brottfall/afföll.
 
Forgang í ferðina hafa þeir bændur/smáframleiðendur sem hafa verið að framleiða vörur og sækja námskeið Farskólans á undanförnum misserum og árum og hafa sýnt að þeim er alvara í því að þróa og selja vörur af svæðinu.