Farskólinn – miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra hefur umsjón með fjarnámi á háskólastigi á svæðinu. Embla Dóra Björnsdóttir og Eva Dögg Bergþórsdóttir sjá um þjónustu við háskólanema, tæknimál og próf háskólanema.
Á Norðurlandi vestra eru námsver og námsstofur á Hvammstanga, Blönduósi, og Sauðárkróki. Sveitarfélögin sjá um rekstur þeirra.