Áfram veginn – fjarnámskeið fyrir fullorðna með ADHD

Er tímabært að horfa fram á veginn? Ertu eldri en 18 ára, kannski nýbúin að fá ADHD greiningu eða fyrir einhverju síðan, jafnvel sem barn? Þá er vefnámskeiðið „Áfram Veginn” mögulega námskeið fyrir þig. Á námskeiðinu ætlum við að fræðast um ADHD með styrkleika að leiðarljósi. Vissir þú að með auknum skilningi á þínu ADHD eykur þú líkurnar á betri stjórn og auknum lífsgæðum í daglegu lífi?  Áskoranir ADHD geta haft margvísleg áhrif í daglegu lífi. Á námskeiðinu skoðum við hvar þær liggja og aðferðir til að takast á við þær og ná betri tökum á þeim. 

Megin þemu námskeiðsins eru: 

  • Taugaþroskaröskunin ADHD 
  • Stýrifærni heilans 
  • Greiningarferli ADHD 
  • Mikilvægi greiningar og sáttar við greiningu 
  • Þróun sjálfsmyndarinnar og fylgiraskanir ADHD 
  • Hugræna líkanið 
  • Styrkleikar ADHD 
  • Bjargráð verða kynnt til sögunnar 
  • Kynning á meðferðarúrræðum fyrir ADHD 

Leiðbeinandi: Sigrún Jónsdóttir þroskaþjálfi og ADHD/einhverfu markþjálfi.

Hvar og hvenær: 17. og 24. mars frá kl. 17:00-19:00 á ZOOM

Lengd: 4 tíma námskeið, tvö skipti.

Verð: 35.000 kr*

*ATH: Stéttarfélögin Aldan, Samstaða, Kjölur, Sameyki, Verslunarmannafélag Skagafjarðar og stéttarfélög sem eru aðilar að Iðunni greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. (Athugið að þetta á við greiðandi félagsmenn í flestum tilfellum og hefur ekki áhrif á persónulegan námsstyrk félagsmanna) Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi