Áleggsgerð og brunch-sérvörur: Frá grunni á borðið
Auktu framlegðina með því að búa til þitt eigið gæðaálegg
Hvers vegna að selja hráefnið óunnið þegar þú getur breytt því í eftirsótta munaðarvöru fyrir morgunverðar- eða brunchborðið? Á þessu námskeiði lærum við að búa til klassískt álegg sem eykur fjölbreytni í þinni framleiðslu og skilar hærri framlegð í hverju kílói.
Við kynnumst handverkinu bak við vinsælar áleggstegundir þar sem bragð og ferskleiki eru í fyrirrúmi. Þetta er tilvalið námskeið fyrir smáframleiðendur sem vilja bjóða upp á eigin sérvöru, sem og áhugafólk sem vill koma fjölskyldunni á óvart með heimagerðu gæðaáleggi án aukaefna.
Á námskeiðinu vinnum við með:
- Lifrarkæfu: Við gerum alvöru kæfu frá grunni – silkimjúka og bragðmikla.
- Malakoff: Lærðu að gera þetta sígilda álegg sem allir elska.
- Steikur og rullupylsur: Við undirbúum og matreiðum steikur og fleira sem hentar fullkomlega sem álegg.
- Sýnikennsla: Farið er yfir fjölbreyttar aðferðir við gerð annarra áleggstegunda sem lyfta brunchinum á hærra plan.
- Verðmætaaukning: Við ræðum hvernig smáframleiðendur geta nýtt þessa framleiðslu til að breyta einföldu kjöti í söluvæna lúxusvöru.
Þátttakendur taka afurðir eigin vinnu með sér heim að námskeiði loknu – tilbúnar á ristað brauð eða í brunch-veisluna!
Hvar og hvenær: 22.mars 9:00-17:00 í Vörusmiðjunni á Skagaströnd
Fjöldi: 8 þátttakendur
Námskeiðið er styrkt af SSNV
Þátttakendur greiða því aðeins efniskostnað
Verð: 24.900 kr
* (Ath. Þátttakendur hafa afurðir eigin vinnu með sér heim að námskeiði loknu)
Leiðbeinandi: Sigfríður Halldórsdóttir, kjötiðnaðarmaður
