Í erindinu verður fjallað um árangursrík samskipti og hvernig við, hvert og eitt, getum haft jákvæð áhrif á samskiptamenningu inni á okkar vinnustað. Við ætlum ekki bara að ræða þetta, heldur fara líka í hagnýtar æfingar og sjálfskoðun sem hjálpa við að efla færni í samskiptum.
Í fyrirlestrinum verður farið í:
– Hvað eru árangursrík samskipti?
– Nærvera og samskiptastíll
– Ávinningur árangursríkra samskipta
– Drullupyttir í samskiptum
– Leiðir til að byggja undir árangursrík samskipti
Verð: 16500kr*
Vefnámskeið
Leiðbeinandi: Lella markþjálfi
Hvar og hvenær: 13. apríl kl. 17:00-18:00
*Námskeiðin eru gjaldfrjáls fyrir þá starfsmenn sveitarfélagsins sem eru í Samstöðu, Kili og Sameyki. Aðrir starfsmenn sæki í sína starfsmenntasjóði
