DANS2LS05 – Lestur, skrif og skapandi hugsun

Lestur, Skrif og Skapandi Hugsun 

Einingafjöldi: 5 
Þrep: 2 
 

Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur geti notað fjölbreyttan orðaforða og algeng orðasambönd í ræðu og riti. Talþjálfun miðar að því að nemendur læri að orða hugsanir sínar skýrt í samtölum og frásögnum. Hver nemandi á að geta lagt til talað efni af tiltekinni lengd eftir markvissan undirbúning í formi kynningar fyrir samnemendur. Ritþjálfun fer að mestu fram með notkun tölvu og nemendur þjálfaðir í að beita mismunandi stílbrögðum við ritun texta og eiga að geta skrifað 150 – 200 orða verkefni um efni sem búið er að vinna með. Nemendur eru hvattir til að hlusta á danskt mál og tónlist af ýmsu tagi á vefmiðlum. Nemendur lesa texta almenns eðlis og sérhæfða texta ýmist prentaða eða af veraldarvefnum, þar sem unnið verður með efni sem tengjast hinum sex námsþáttum. Lögð er áhersla á að nemendur tileinki sér sjálfstæð vinnubrögð, beri ábyrgð á eigin námsframvindu og séu meðvitaðir um mismunandi aðferðir til að tileinka sér tungumál. Áhersla er lögð á að efla samvinnu nemenda auk þess sem þeim gefst kostur á að sýna hæfni sína með fjölbreyttum verkefnaskilum sem ýtir undir lausnamiðaða hugsun og sköpun. 

Þekkingarviðmið 

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á: 

  • • ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta danska og íslenska menningu 
  • • mikilvægi þess að skilja og tala norðurlandamál 
  • • orðaforða til markvissrar notkunar, bæði munnlega og skriflega 
  • • notkun hjálpargagna, meðal annars orðabóka á netinu 
  • • að miðla þekkingu sinni munnlega og skriflega 

Leikniviðmið 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að: 

  • • hlusta á danskt mál og skilja meginmál t.d. í fréttum og í leiknu efni 
  • • lesa sér til gagns texta um margvísleg málefni 
  • • tjá hugsanir sínar á dönsku, skriflega og munnlega með skapandi hætti. 

Nánari upplýsingar á námskrá.is 

Lengd: 45 kest

Hvar og Hvenær: Kennt mánudaga og miðvikudaga 18:00-20:10 og hefst í byrjun september 2024

Verð: 19.300.kr hver áfangi

Leiðbeinandi: Ágúst Ingi Ágústsson

Skráning: Hægt er að skrá sig hér til hægri, en einnig er hægt að senda tölvupóst á farskolinn@farskolinn.is, hringja í síma 4556010 eða senda okkur skilaboð á Facebook.