Þetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).
Á þessu ítarlega og gagnlega námskeiði er vandlega farið yfir allt sem nauðsynlegt er að vita varðandi fjármál við starfslok.
Meðal þeirra spurninga sem svarað verður eru:
- Hvenær og hvernig hentar að sækja lífeyrisgreiðslur?
- Hvernig göngum við á séreignarsparnað og hvaða áhrif hefur tilgreind séreign?
- Hvað þarf að vita varðandi greiðslur og skerðingar Tryggingastofnunar? – Er skynsamlegt að sækja hálfan lífeyri?
- Hvernig deili ég lífeyri með makanum mínum?
- Hvaða skatta kem ég til með að greiða?
Fyrir hverja er námskeiðið? Námskeiðið hentar einkum fólki sem komið er yfir sextugt og vill bæta þekkingu sína á lífeyrismálum sem og þeim sem aðstoða nákomna lífeyrisþega.
Ávinningur þátttakenda: Þátttakendur öðlast betri yfirsýn yfir réttindi sín og þá valkosti sem í boði eru. Bætt þekking dregur úr líkum á kostnaðarsömum mistökum og gefur færi á að hámarka virði lífeyris og réttinda.
Leiðbeinandi :
Björn Berg Gunnarsson hefur 16 ára reynslu af ráðgjöf og fyrirlestrahaldi um fjármál. Hann starfaði lengi sem ráðgjafi á verðbréfa- og lífeyrissviði Íslandsbanka, var fræðslustjóri bankans í yfir áratug og stýrði greiningardeild hans.
Hann hefur BS próf í viðskiptafræði, próf í verðbréfaviðskiptum og meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði.
Björn er reglulegur álitsgjafi um fjármál í fjölmiðlum, pistlahöfundur og er höfundur bókarinnar Peningar.
Hvar og hvenær: 25. mars klukkan 17:00-19:00
Vefnámskeið
