Gervigreind í daglegu lífi: Persónulegi aðstoðarmaðurinn sem þig hefur alltaf dreymt um

Hljómar vel að fá hjálp við að skipuleggja matarinnkaupin, semja ræðuna fyrir ferminguna, skipuleggja sumarfríið eða finna réttu orðin í jólakortið? Gervigreind er ekki bara fyrir tölvunörda – hún er frábært verkfæri fyrir allt venjulegt fólk sem vill einfalda lífið.

Á þessu námskeiði skoðum við hvernig þú getur notað ókeypis tól (sem og áskriftartól) til að leysa hversdagsleg vandamál. Engin tölvukunnátta nauðsynleg, bara forvitni!

Á námskeiðinu lærir þú:

· Að nota gervigreind sem ferðafélaga og skipuleggjanda.

· Að fá hugmyndir að matseðlum, gjöfum og afþreyingu.

· Hvernig tæknin getur aðstoðað við heimanám barnanna eða tungumálanám.

· Einföld trix sem gera hversdaginn skemmtilegri.

Fyrir hverja? Alla sem vilja prófa sig áfram með nýjustu tækni á mannamáli.

Vefnámskeið

Verð: 19.900kr*

Leiðbeinendur:

Bergmann Guðmundsson og Hans Rúnar Snorrason

Hvar og hvenær: 16. apríl kl. 17:00-19:00

*Námskeiðin eru gjaldfrjáls fyrir þá starfsmenn sveitarfélagsins sem eru í Samstöðu, Kili og Sameyki. Aðrir starfsmenn sæki í sína starfsmenntasjóði