Hrossakjöt: Frá vannýttu hráefni í ítalska lúxusvöru

Hrossakjöt: Frá vannýttu hráefni í ítalska lúxusvöru

Fyrirlestur, ferðasaga og bragðupplifun með Sigfríði

Hrossakjöt er eitt af okkar hreinustu og næringarríkustu hráefnum, en það er víða vannýtt í íslenskri matvælaframleiðslu. Til að breyta því sendum við Sigfríði, kennara okkar, í lærdómsför til Ítalíu – þar sem vinnslu hrossakjöts er gert hátt undir höfði.

Nú býður hún okkur með í ferðalagið á tveggja klukkustunda fyrirlestri þar sem hún miðlar af reynslu sinni af ítalska handverkinu. Við skoðum hvernig má breyta hrossakjöti í hágæða hrápylsur og hvernig ítalskar hefðir við verkun vöðva geta opnað nýja heima fyrir íslenska bændur og smáframleiðendur.

Á dagskrá verður:

· Ferðasaga í myndum: Sigfríður sýnir frá vinnsluaðferðum og kynnum sínum af ítölskum meisturum.

· Tæknin bak við bragðið: Farið yfir hrápylsugerð, meyrun og verkun sem hentar sérstaklega hrossakjöti.

· Tækifæri íslenskra bænda: Hvernig getum við aukið verðmæti og framlegð með því að nýta hrossakjötið í meira en bara hefðbundið hakk eða bjúgu?

· Smakk á ítalska vísu: Þátttakendur fá að smakka á afurðum sem sýna möguleika þessa dýrmæta hráefnis.

Þetta er einstakt tækifæri fyrir bændur, matvælaframleiðendur og áhugafólk um nýsköpun í matvælum til að fá innblástur og nýja sýn á íslenska kjötframleiðslu.

Aðgangur er ókeypis þökk sé styrk frá SSNV, en nauðsynlegt er að skrá sig svo allir fái smakk!

ATH. Takmarkað sætaframboð

Leiðbeinandi: Sigfríður Jódís Halldórsdóttir

Hvar og hvenær:

Farskólinn á Sauðárkróki

Miðvikudagskvöldið 18. mars

Hefst klukkan 19 og stendur í u.þ.þ 2 klukkustundir